Símafundur Landsbyggðin lifi 7.9 2023 kl. 20:30
Mætt eru: Sigríður, Þórdís, Björgvin, Helga, Stefanía, Ómar í stutta stund. Einnig voru Bjarni og Hildur á fundinum.
Björgvin setti fund.
Aðalfundur á Egilsstöðum 30/9 2023. Verður haldin í Gamla sláturhúsinu á Egilsstöðum. Byrjar kl. 9:00
Hádegismatur í Vallarnesi kl. 12:00 en að auki verður skoðað hvað fer þar fram. Kl. 14:00 hefst málþing LBL og Framfarafélags Fljótsdalshéraðs um landsbyggðarmál, sjálfbærni og fleira í Gamla sláturhúsinu . Stefnt á að því ljúki kl. 17:00 vegna flugs stjórnarmanna suður.
Stjórnarmenn koma til Egilsstaða á föstudag, með flugi frá Reykjavík og á bíl frá Dalvík. Gist verður eina nótt. Fólk þarf að láta Bjarna vita hverjir ætla að gista og hverjir verða saman í herbergjum.
Björgvin gefur ekki kost á sér sem formaður áfram en er til í að vera í varastjórn. Aðrir gefa kost á sér áfram en eru tilbúnir að færa sig milli aðalstjórnar og varastjórnar eftir þörfum.
Ákveðið að Bjarni sendi auglýsingu í Austurgluggann og á heimasíðu LBL. Hildur mun útbúa viðburði á Facebook um aðalfundinn og málþingið.
Skýrsla stjórnar 2021 og 2022. Björgvin biður fólk um að senda inn uppl. í tölvupósti um hvað hefur verið í gangi. Vinnum svo skýrslu stjórnar upp úr því.
Fundur fólksins. Laugardagurinn 16.9 2023.
Sigríður, Hildur og Vigfús mæta og Ómar ef hann mögulega getur þar sem 16/9 er Dagur íslenskar náttúru og valin sú dagsetning . Verið er að útbúa og láta prenta banner til að hafa á svæðinu. Hildur útbýr viðburð á Facebook og mun hafa samband við fjölmiðla til að ræða um Fund fólksins og málþingið. Skoðar hvort hægt verði að komast í Mannlega þáttinn.
Stefanía sagði frá listadvöl Groupe ToNNe á Kópaskeri. Myndbönd sem gerð voru er enn ekki komin á heimasíðu Butterflies – Fiðrildaverkefnisins en hún mun deila þeim á Facebook síðu LBL þegar þau eru komin inn. Our Civic Heritage – OCH er formlega lokið, lokaskýrslu hefur verið skilað.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi lauk 21:15
Fundagerð ritaði Stefanía.