Fundargerð stjórnar 12. febrúar 2026

Hildur ThordardottirFréttir, InnlentLeave a Comment

Stjórnarfundur samtakanna Landsbyggðin lifi 12. feb. 2026 kl. 20:30, á netinu. Mættir: Hildur Þórðardóttir, Stefanía Gísladóttir, Guðrún Torfhildur Gísladóttir, Björgvin Hjörleifsson, Helga Guðný Kristjánsdóttir, Anna Sigríður Pétursdóttir og Vigfús Ingvar Ingvarsson sem kom síðar.

Coming, Staying, Living
Hildur byrjaði á að þakka fundarmönnum fyrir frábæran undirbúning fyrir veffund okkar í verkefninu Coming Staying Living sem haldinn var 17. janúar. Mæting var frábær og góðir fyrirlesarar, m.a. Helga Guðný í stjórninni.
Rætt um staðarfundinn 7.-10. maí sem fyrirhugað er að halda á Kirkjubæjarklaustri. Þurfum að vita hvaða stjórnarmenn ætla að mæta upp á að bóka fleiri herbergi. Búið er að bóka hótel fyrir 20 manns með morgunmat og búið að útvega fundarrými. Þurfum líka að vita hversu margir ætla héðan upp á hvort við getum ferjað útlendingana eða hvort þurfi að leigja rútu fyrir hópinn.
Ræddar hugmyndir um fyrirlesara. Stefanía er með sveitarstjóra í huga sem hefur verið með fyrirlestra um vindmyllur og talar fyrir því að vindmyllur séu í eigu Landsvirkjunar eða heimamanna. Hún man ekki nafnið en ætlar að finna það og hafa samband við hann.
Elísabet Svava Kristjánsdóttir í Möðrudal ætlar að vera með erindi og stefnir á að
koma á staðinn.
Guðrún ætlar að hafa samband við frænkur mannsins síns sem búa í sveitinni nálægt Kirkjubæjarklaustri upp á að koma á þingið og jafnvel vera með erindi.
Fundurinn fjallaði almennt um orkumál á landsbyggðinni. Meðal annars kom fram að rafmagn til garðyrkjubænda sé of dýrt og að þeir slökkvi á húsunum sínum á veturna og á meðan þurfum við að flytja inn grænmeti. Anna Sigríður segir að raforkuöryggi sé ábótavant á Íslandi. Hún ræddi við konu frá Hjaltlandi á dreifbýlisþinginu í Skotlandi sem sagði að vindmyllurnar hefðu breytt miklu í sambandi við raforkuöryggi. En reglufarganið er að drepa allt framtak fólksins sjálfs. Kostnaður stundum óheyrilegur auk tafanna. Fólkið, sem er að setja reglurnar, býr allt á höfuðborgarsvæðinu (eða í Brussel) og virðist aldrei hafa komið í sveit. Einnig kom fram að rafmagnsbílar á Ísafirði eru hlaðnir með díselrafmagni.
Vigfús finni netfang konu á Hjaltlandi, Annette Priest heitir hún og býr í Leirvík, og sendi á Önnu Sigríði og Guðrúnu.
Stungið upp á að hópurinn heimsæki Vatnajökulsþjóðgarð, Kirkjubæjarstofu og Mosasafnið. Katrín Gunnarsdóttir, samstarfskona okkar á Kirkjubæjarklaustri, ætlar að koma með hugmyndir að gönguferðum og kanna hvort hópurinn fái afslátt í sund. Guðrún nefnir Systravatn í þessu sambandi, jafnvel hvort Fjaðrárgljúfur kæmi til greina.
Stefanía stingur upp á að fá einhvern til að fjalla um leyfismál, t.d. frá
Bændasamtökunum, Samband íslenskra sveitarfélaga einnig nefnt. Helga Guðný og Stefanía finna einhvern til að flytja erindi.
Stefnt að fyrirlestrum/erindum í þrjá tíma fyrir hádegi og tvo tímum eftir hádegi og hafa góðan tíma fyrir samræður og umræður og tengslamyndun. Eða öfugt, fer líka eftir veðri.
Helga, Vigfús, Stefanía, Guðrún og Hildur stefna öll á að mæta af þeim
stjórnarmönnum sem voru á fundinum. Björgvin reiknaði ekki með að komast. Kristín og Hafrún komast líka. Hildur þarf að senda Sveini á hótelinu og biðja um þrjú herbergi í viðbót. Getum staðfest fjölda og nafnalista í marslok. Guðrún ætlar að tala við manninn sinn upp á að hafa sumarhúsið til.
Á þriðjudaginn í næstu viku er veffundur Svíþjóðar í verkefninu C.S,L, 17. feb. kl. 17:30. Á fundinum verður fjallað um húsnæðismál. Hildur þarf að gera litla fréttatilkynningu og senda á póstlistann okkar.

Staða verkefna:
Umhverfisverkefnið RED: Hópur frá okkur fór til Rúmeníu og voru allir ánægðir. Við þurfum að klára fundi með ungu fólki en fyrst þarf hópur frá okkur að ljúka Climate First námskeiði. Stefanía og Guðrún munu eiga veffund með aðilum um það námskeið á morgun til að ræða fyrirkomulagið. Ljúka þarf fundum og úrvinnslu frá þeim fyrir lok apríl.
Ladyleader verkefnið: Tveir fundir búnir – ekki gengið nógu vel að smala saman fólki. Stefnt á fundi á Fáskrúðsfirði og Kópaskeri – reynist þurfa meira en einn dag. Þáttakendur lærðu mikið af fundinum fyrir vestan. Höldum áfram leitað að konum til þátttöku, jafnvel spurning um að auglýsa eftir áhugasömum á fésbókarsíðu LBL. Hugmynd um fund/námskeið á vefnum. Vigfús nefnir þýðingarnar fyrir verkefnið og ætlar að senda Stefaníu nr. mynda sem hann gat ekki þýtt. Ath. þýðingu á orðinu modul.
Fundur Euroreso: Hildur og Stefanía fara á fund í Kalamata í Grikklandi 29. apríl. Fengu ódýrt flugfar og fría gistingu en þurfa að leigja bílaleigubíl.
Fundur í Hela Norden Ska Leva var í dag, tvennt sem við þurfum að vita: Hinn 24. mars verður veffundur kl. 12, ísl. tími, við þurfum að finna einhvern vinkil á viðbragðsáætlanir vegna áhættu. Til dæmis, hvernig virkar kerfið ef rýma þarf þorp? Stungið upp á að hafa aftur samband við Runólf hjá Almannavörnum um erindi þann 24. Hildur og Stefanía tala sig saman um þetta.
Í lok maí er von á boði á Sænska dreifbýlisþingið. Ræða á næsta fundi hverjir fara.

Heimasíðan: Leiðréttingar/breytingar uppfærast ekki. Ólafur Rafnsson, sem fór með til Rúmeníu, sagðist mögulega geta skoðað hana og fært inn á hana fyrir okkur. Guðrún ætlar að athuga hvort hann sé búinn að skoða þetta eitthvað og hvort hann hafi tíma til að sinna þessu.
Önnur mál engin.

Fundi slitið kl. 21:48.
Fundargerðina rituðu Hildur Þórðardóttir og Vigfús Ingvar Ingvarsson

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *