Ágætu lesendur nær og fjær!
Samtökin Landsbyggðin lifi óska öllum landsmönnum gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári. Alúðar þakkir til allra sem hafa komið að starfi samtakanna á liðnu ári og undanfarna tvö áratugi m.a. framfarafélög, einstaklinga og virka hópa sem hafa veitt okkur liðsinni gegnum árin.
Ekki síst öllum sem hafa fylgst með verkefnum samtakanna á vefsíðunni landlif.is og á facebook síðunni Landsbyggðin lifi – farsæld til framtíðar.
Við í stjórninni erum þakklát fyrir góðan árangur og samvinnu sem skilar af sér bjartari framtíðarsýn.
Verum virk í sjálfbærni og samvinnu.
Hátíðarkveðja frá samtökunum Landsbyggðin lifi.