![]() |
Um félagið Stjórn Félagatal Lög Starfsemin Áhuga- og vinnuhópar Hugmyndabanki Landssamtökin - LBL |
Framfarafélag Dalvíkurbyggðar | |
|
Starfsemin Skýrslur stjórnar Fundagerðir Hugmyndir Fyrirlestrar á málþingum
|
Hugmyndir Mikil þörf er fyrir nýjum og fjölbreyttari atvinnutækifærum. Hér verða taldar upp þær hugmyndir sem hafa verið reifaðar á fundum okkar: Fiskeldi Fiskeldi - sérstaklega bleikjueldi sem er mjög álitleg grein og sá fiskur sem einna best er að selja. Seiðaeldi í þorski og áframeldi. Laxeldi. Sæeyru o.fl.Matvælaframleiðsla. Vinna meira heima. Heimaslátrun. Matarkynningar og veitingasala með heimagerðum mat og víni. Fíflavín, berjavín. Þróa og vinna úr því sem við fáum heima hjá okkur. Byrja smátt. Stofna fyrirtæki sem reyka malvæli, bæði til útflutnings og á innanlandsmarkað. Nýta betur það sem tilfellur í sjávarútvegi. Reykt matvæli. Reyktur kjúklingur er herramanns matur. Auðvelt er að koma upp reykhúsi og reykja fisk (rauðmaga), kjöt og kjúklinga. Vitað er um reykgám í Skagafirði sem er til sölu á 200-300 þús. Hér er heitt vatn og þá er lítið mál að koma upp reykaðstöðu.Ferðamál. Skíðaiðkun hverskonar - vélsleðaferðir, svigbrautir, snow-cross mót, curlilng, gönguskíðaferðir í fjöllum og láglendi, brettaiðkun, ísklifur, skíðastökk, dorgveiði á ís, leikir á ís, kappreiðar, hestasýningar, bowling, skautaleikir.Ferðir um sjó og vötn. Hvalaskoðun fuglaskoðun, sjóstangveiði, bleikjuveiði í ám, köfun, kajakferðir, seglbretti, siglingar, skemmtibátar, fluguveiði í sjó, róður. Gera meira út á Fiskidaginn mikla. Gönguferðir með leiðsögn, með trússahesta. Kannski ættum við að flytja inn lamadýr. Grasaferðir, steinasöfnun frá fjöru til fjalla. Berjaferðir. Hestaferðir og kennsla í tamningum og járningum. Hestamiðstöðvar með útleigu. Gera meira úr fjárréttum og stóðréttum. Viðburðaferðamennska með óvissu- og ævintýraferðum. Sækja í ævintýramennsku á Tröllaskaga. Menningatengd ferðaþjónusta. Varðveita gömlum vinnubrögð. Handverkssýningar, listasýningar, tónleikar (nóg er af tónlistafólki), kórsöngur, leiksýningar,sumarleikhús úr fornsögunum, þjóðsögum (Bakkabræður), Íslandssögunni. Kirkjuferðir. Sveitadansleikir, þjóðdansar, þorrablót. Hólmsteinn Snædal ræddi um verkefni sem gæti passað fyrir þetta félag sem væri byggingasögusafn í gömlum húsum sem þyrfti að endurbyggja og þar mætti sýna mismunandi byggingarefni og síðan fræða fólk um hin ótal mörgu heiti á hinum ýmsu gerðum af t.d. aflviðum og samsetningi á timbri við mismunandi aðstæður. Þetta væri metnaðarfullt verkefni og hefði mikið menningarsögulegt gildi og gæti hentað vel á Dalvík.Umhverfismál . Merking gönguleiða, Varðveisla náttúruminja, eyðibýla, gamalla húsa, náttúruvætta. Skógrækt til landbóta, skjólbeltaræktun."Að fara í sveit”. Bændur og annað sveitafólk gætu skipulagt sumarnámskeið fyrir t.d. börn sem koma erlendis frá - börn Íslendinga erlendis. |
||